Hugrún Sigurðardóttir

Til ykkar frá mér.........

08.01.2009 15:17:25 / horka

8. janúar

Hej hej allihopa:lol:

Ég ætla nú að byrja á að þakka öllum kærlega fyrir allar kveðjurnar í gær:haha: alveg frábært.

Ég er svona að reyna að herða mig upp í að taka niður jólaskrautið en einhvernveginn er ég ekki að nenna því ha, læt það kannski bíða fram að helgi;)

Hagalín minn er 25 í dag svo maður rennir sér í heimsókn á eftir og verður kannski heppinn og fæ köku8|

Ræktin byrjar hjá mér í kvöld en ég er búin að vera í 3ja vikna fríi og núna verða 2 nýjar með okkur Stínu þær Jóhanna vinkona mín og Birgitta vinkona Stínu.

´Hehe var að koma úr krabbameinsskoðun og mikið skelfingar færibandavinna er þetta ha "Sæl, sestu, út með fætur, ætla að skoða legið aðeins, vertu blessuð" já svo mörg voru þau orð8)

Við amma og afi ætlum að passa Guðjón litla Hagalín á morgun og kenna honum ósiði híhí hann er svo duglegur hleypur um í göngugrindinni og er farinn að labba með, nennir nú ekki að skríða, dregur sig einhvern veginn áfram á rassinum svona þegar hann nennir. Þarf að fara að setja nýjar myndir hérna inn af honum en síðan ég stofnaði facebook þá fara allar myndir þar inn8|

Nei farin í bili kossar og knús til ykkar allra þarna úti

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 12:08:21 / horka

3. Janúar 2009

Gleðilegt ár kæru vinir:haha:

Við hér á Stekkjarholtinu erum hress, fengum reyndar smá bankaskell eins og sjálfsagt flestir landsmenn,en það er bara að vinna sig út úr þessu og líta út fyrir rammann sem maður er duglegur að smíða utan um sig.

Jólin og áramótin voru  yndisleg hjá okkur fjölskyldunni allir komu í mat og drykk, ja reyndar ekki Eyrún mín og Svenni þau eru í námi i Bandaríkjunum og gengið bíður bara ekki upp á flugferðir fyrir námsmenn.

Mamma er að hressast en hún var flutt suður á öðrum degi jóla.

Breytingar hafa líka átt sér stað á vinnustaðnum mínum sem eru af hinu góða, þetta eru endalausar hagræðingar svo ekki sé meira sagt.

Dætur mínar Nanna, Edda og Alda eru að fara í útsöluferð til R.vík núna á eftir en þær fengu allar gjafabréf í Kringlunni í jólagjafir.

Jæja elsurnar mínar ætla að taka mér bók í hönd og slaka á er að drepast úr einhverri kvefóværu.

1000 kossar og knús til ykkar allra þarna úti

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 16:30:20 / horka

16. Nóvember.........

Hej hej allihopa:haha:

Jæja pössunin hjá okkur gekk rosalega vel:haha: ekki mikið fyrir honum að hafa, en við voru reyndar komin á fætur kl. 8 i morgun;) því það þurfti að fara með Guðjón í ungbarnasund:lol: afi fékk nú þann heiður að fara með hann ofaní ég viðurkenni það alveg að ég ´var hálfsmeyk við það8| en allavega voru teknar fullt af myndum af þeim, amma gamla sá um þann part:haha: Annars var piparsteik a la Eyjólfur í gærkvöld aldeilis æðisleg og auðvita smá rauðvínstár með;)  Nansa mín kom aðeins við á leið í vinnu á Mörkinni, ég er svo ánægð með hárið þitt svona;)

Annars er starfsfólkið hjá Norðanfisk að fara á Jólahlaðborð á næstu helgi, og verður byrjað snemma heima hjá Jónu en hún er búin að bjóða öllu heim í fordrykkju áður en haldið verður af stað. Við erum sko að fara í Fossatún bæðevei.

Amíra er byrjuð á túr8|8| og veit ekkert í hvaða loppu hún á að stíga og skilur ekkert að hún þarf að þrífa upp eftir sig:$:$ gengur um með hangandi haus og dæsir bara.

Hætt í bili, ætla að spila einn bubbles eða þannig sko8)

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 13:36:00 / horka

14. NÓVEMBER............

Hej hej allihopa:haha:

Muniði eftir mér8) ég hef víst ekki bloggað síðan í sumar8| og nú eru að koma jól, eða að minnsta kosti er fólk farið að skreyta8|. En jæja af mér og mínum er bara allt gott að frétta nema að hann Eyfi varð fyrir því óláni að anda að sér klórgasi þannig að hann er búinn að vera á sjúkrahúsi en er kominn heim og vonum bara að allt verði í lagi:lol::lol:

Nanna mín og Árni eru í góðum gír og þeim gengur rosalega vel, svo sem engin bankakreppa hjá þeim8|

Edda mín, Hagalín og ömmuprinsinn eru í góðum málum, Hún er farin að vinna í Hvíta húsinu og byrjar svo á fullu í háskólanum eftir jól, prinsinn minn dafnar vel og amma fær sko að vera með hann um helgina:haha: en skötuhjúin eru að fara í smá ferðalag;);)

Aldan mín er í fjölbraut, vinnur á Galito og syngur í kirkjukórnum og stúlknakórnum, alltaf sami gleðigjafinn:haha::haha:

Yrsan mín er á fullu í magadans og það er einmitt sýning hjá þeim núna í desember, svo er hún líka í stúlknakórnum:haha:

Ég sjálf er nátúrulega að vinna, í ræktinni 3svar í viku hjá Sigga einkaþjálfara, svo nú er brátt komin ár síðan ég byrjaði hjá honum;) Dansinn er nú alltaf í fyrsta sæti samt, Óli Geir var með Landsmót núna í haust og við sömdum einmitt 2 dansa fyrir það:haha: En í næstu viku ætla ég að vera með tímana fyrir Óla minn en hann er að fara til Kanarý með eldri borgurum sem dansa hjá honum.

Já þannig er nú það krakkar mínir, já jemin, má ekki gleyma að segja ykkur að ég er búin að uppgötva facebook8) og á þar orðið fjölda vina sem er yndislegt að fylgjast með, þar á meðal bekkjarfélaga mína frá grunnskólaárunum:haha: okkar sokkabandsárum hehe8)8)

Nei nú ætla ég að hætta í bili og vona að einhver þarna úti sé nú enn að fara inn á síðuna mína þó hún hafi legið í dvala í nokkurn tíma:haha:

Kossar og knús til ykkar þarna úti og muna að brosa og hugsa nú að þetta gæti nú allt verið verra,, er það ekki..

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 13:33:37 / horka

6.ÁGÚST...............

Hej hej allihopa:haha:

Jæja þá er verslunarmannahelgin liðin og einhvern veginn finnst mér sumarið bara búið8| en það er auðvita ekki rétt er það?;)  Við hjónin fórum í okkar sælureit Húsafell ásamt fullt af fólki8)8) mikið grillað, sungið og drukkið8)8) alveg rosalega gaman:haha::haha:

En annars var ég að setja inn nokkra myndir af ömmuprins:haha: ég er nú aðeins að skammast mín sko hef ekki séð hann í næstum heila viku8| hann er örugglega farinn að segja "amma mín" híhí

nei verð að þjóta mánudagur í öllum vélum hjá mér í vinnunni:cry::cry:

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 4 hafa sagt sína skoðun

29.07.2008 13:12:15 / horka

29. JÚLÍ.............

Hej hej allihopa;);)

Jæja ferðin austur á firði tókst rosalega vel, við flugum til Egilsstaða og keyrðum til Vopnafjarðar þar sem við sýndum fyrst, svo var brunað til baka þar sem var tekið á móti okkur með þeirri bestu sjávarréttasúpu sem ég hef fengið namminamm:haha: svo var bara að drífa sig á Fáskrúðsfjörð8) við vorum með hús foreldra Jóhönnu til afnota, já takk fyrir það, auðvita var byrjað á smá bjórsulli og haldið niður í þorp á brekkusönginn8) en það var nú doldið erfitt að fylgja forsöngvaranum hann söng svona út og suður(eða austur) en við skemmtum okkur samt sem áður konunglega8)8) kíktum svo á bar á hótelinu held ég8|8| 
 
Laugardagurinn var svona letilíf framan af en svo var okkur ekkert til setunar boðið og drifum okkur í dansgallann, og það get ég sagt að hún Bergdís Fanney átti pleisið;);) þvílík upplifun hjá drottningunni8)8) Letilífið hélt áfram borðað, drukkið og spjallað og haldið niður í félagsheimili þar sem var stiginn dans fram á morgun8)8) sem sagt rosalega vel heppnuð ferð hjá okkur;)

Tók svo á öllu mínu í ræktinni í gærkveldi og svitaði restinni af áfenginu út:haha::haha:

Nei verð að þjóta vinnan kallar..

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.07.2008 07:50:36 / horka

21. JÚLÍ...............

Hej hej allihopa:haha:

Jæja það er best að skrifa smá færslu svona áður en sumarið rennur út;);)

Það helsta er að Ella systir hefur fengið tvö ný barnabörn:haha: Gunnar og Gunna fengu prins 13 júlí og Benni bjútí og Rósa fengu líka prins 11. júlí, til hamingju þið öllu:haha:

Við hjónin skruppum í Husafell um helgina ásamt fríðu föruneyti8) þ.e. Aldan mín, Yrsan mín, Amíra mín og Eddan mín og Ömmuprinsinn:haha::haha: og auðvita var dekrað við hann hægri vinstri, meira segja gistu amma og afi í tjaldi svo prinsinn og Eddan gætu verið í bílnum;) úff það var svo heitt í tjaldinu8|8|

Um næstu helgi ætla ég svo  með Óla Geir, Jóhönnu og dóttur henni austur í land nánar tiltekið byrjum við á Vopnafirði þar sem við sýnum dans ásamt henni Lísu minni og Þorbjörgu svo liggur leið okkar á franska daga á Fáskrúðsfirði þar sem við sýnu tvisvar;);)  þetta verður bara gaman8)8)

Aldan mín er byrjuð í ökutímum8|8|. (halló mér finnst ég jafa átt hana svona fyrir 3 árum8|8| . ) og gengur rosalega vel, hún er reyndar voða smávaxin og er mikið grínast með það hvort hún nái niður á pedalanna ;);)

Nei verð að þjóta, vinnan kallar

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 10:09:05 / horka

7. JÚLÍ:)

Hej hej allihopa:haha:

Jæja þá eru írskir dagar búnir hérna á Skaganum8)8) við hjónin vorum nú ekki alveg eins dugleg núna og við höfum verið síðustu ár8|8| fórum samt niður í bæ á föstudagskveld og hittum þar bröðrene og fullt af fólki8)8) bara skemmtilegt, maður fékk sér aeins í tánna8)8) Á laugardag fórum við til Tútta litla og Mæju í mat og þá var þar staddur  líka Léttfeti bróðir;);) alltaf jafn hress. Komum heim um 21 með Ölduna hún var að fara með vinkonum sínum á röltið. En við Eyfi fórum til Jóhönnu og Einars þar sem var drukkin bjór og svo farið í göngu niður í bæ8) kíktum á Café Mörk en Nansa mín var að vinna og splæsti hún drykk á okkur sem er einmitt skírður Nanna8|8| Svo fórum við niður á höfn á Lopapeysuna en vorum bara fyrir utan enda nóg af fólki þar til að spjalla við:haha::haha: vorum svo komin heim þetta rétt um 4 rosalega fínt..

Yrsan mín fór í sumarbústað með ömmu sinni og afa á föstudag:haha: en hún var búin að hringja á laugardag og sagðist nánast vera  að deyja úr heimþrá og mömmuveiki8|8| en samt var sko rosalega gaman og vantaði bara mömmu, hún hringdi sem sagt 8 sinnum til að tilkynna mér að hún væri sko að koma heim:cry::cry: þannig að Tútti litli bróðir fór í gær til að sækja hana og kemur hún heim í dag, ótrúleg stúlkan sú

Nei verð að hætta núna er að stelast í vinnunni;);)

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 2 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 11:33:10 / horka

3. JÚLÍ:)

Hej hej allihopa:haha:

NÚNA ER MYNDIRNAR AF ÖMMUPRINSINUM KOMNAR INN8|8| var í veseni af því myndirnar voru allt of stórar úbbs;)

Annars er  allt í fínu hjá okkur, var með tímann hjá Óla í gær og var aldeilis tekið á því og náttúrulega  og bara svitnað8)8)

Skrifa nú ekki meira að sinni er að stelast í vinnunni;);)

kossar og knús til ykkar þarna úti

ps: myndirnar er í Guðjón Hagalín:haha:

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.06.2008 08:48:41 / horka

30. JÚNÍ

Hej hej allihopa8|

Jæja þá er júní að verða búin, ótrúlegt8| við skelltum okkur í Húsafell um helgina með Öldunni, Yrsunni og Amíru bara skemmtilegt en það var reyndar svolítið kalt:$

Ég var að setja inn myndir af ömmuprinsinum í albúmið hans:haha: og læt fljóta nokkrar af Amíru líka.

Annars er allt í fínu, verð með tímann fyrir Óla minn á miðvikudag en hann er á ættarmóti í Köben.

nei verð að þjóta vinnan kallar:haha:

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 14:06:57 / horka

26. JÚNÍ..........

Hej hej allihopa:haha:

Jæja þá er best að byrja að blogga aftur:haha: Við Eyfi minn og Yrsan mín erum búin að vera út á Mallorca í 2 vikur8)8) það var alveg meiriháttar skemmtilegt, mikið legið í sólbaði, slappað af, borðaður góður matur og huggulegheit8)8)

En ég verð nú að viðurkenna að ég var nú komin með pínkulitla heimþrá, sá litla ömmuprinsinn í hverju ungabarni sem varð á vegi mínum8|8| og auðvita saknaði ég líka stelpnanna minna líka hehe:haha:

Núna er hvergsdagsleikin tekin við aftur þ.e. vinna, ræktin og dansinn bara skemmtilegt:haha::haha:

Nei ætla að hætta núna en set fljótlega inn myndir úr sumarfríinu okkar8)8)

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 15:16:20 / horka

11. maí

Hej hej allihopa:haha:

Ég var núna fyrst að setja inn skírnamyndirnar af prinsinum mínum;);) búið að vera svo mikið að gera hjá mér eins og ávallt8).  Var á Selfossi með Dívunum og Óla mínum í gærkveldi, en Silja bað okkur að dansa á hátíðinni "Vor í Árborg"  það var rosalega gaman síðan var haldið á 30 ára gaggóafmæli hjá Soffíu og Önnu Guðríði og dansað aðeins þar líka8)8)8)  Þannig að ef ykkur vantar skemmtiatriði þá erum við til, náttúrulega fyrir smá pening, erum sko að safna;);)

Já við erum komin með hvolp8) sem heitir Amíra algjör krúttsprengja, hún er af tegundinni King Cavalier og er 9 vikna, ég set svo inn sér albúm fyrir hana síðar.

Verð að hætta núna þvottavélin búin:$:$

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 14:09:58 / horka

5. MAÍ:)

Hej hej allihopa:haha::haha:

Jæja þá er Íslandsmeistaramóti í línudönsum lokið:haha::haha: og okkur Dívunum gekk rosalega vel við urðum í fyrsta sæti jibbíííí;);) Gvöð hvað ég var glöð og svo vann ég líka einstaklingskeppnina í erfiðari flokki8)8) og ekki minnkaði gleðin við það;);) það voru reyndar bara 3 hópar að keppa er sko ekki að skilja hvar allt þetta fólk sem er að dansa er að pæla með að mæta ekki til leiks ha, svo myndu náttúrulega allir kvarta ef keppnin legðist af8|8|. En alla vega þá voru um 30 í einstaklingskeppninni í mínum flokki
 svo það var til mikils að vinna:haha::haha: Þá er bara spurning að hætta að keppa fyrst báðir titlar eru í höfn:$:$ nei bara að grínast. Er að setja myndir inn af okkur Dívunum, já og ekki má gleyma að Silja mín fékk annað sætið en hún vann mig í fyrra;);)

Nei verð að hætta og fara að vinna uss bara8|8|  1000 kossar og knús til ykkar þarna úti..

» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 13:43:51 / horka

2.MAÍ

Hej hej allihopa:haha:

Smá blogg frá mér loksins;) Það er bara búið að vera endalaust mikið að gera hjá mér undafarið svo ég hef bara ekki gefið mér tíma til að skrifa neitt.

Ömmuprinsinn var skírður í gær og heitir Guðjón Hagalín sem hann var nefndur strax við fæðingu:haha: Þetta var rosalega flott hjá krökkunum :haha: Helga Ingibjörg var alveg yndisleg, söng í kirkjunni "Bláu augun þín" og ég er nú alltaf svo vikvæm á svona augnablikum að ég táraðsit bara:cry: veisla var svo haldin með 70 manns og gjafirnar sem prinsinn fékk jemin bara eins og ferming8)8)

Ég hef svo verið að dansa nánast á hverjum degi, keppnin er á morgun og hlakka ég ekkert smá til8)8) það er keppt bæði í hópum og einstaklings rosafjör. Annað kvöld er svo matur og ball hjá Ól mínum rosa stuð.

nei verð að þjóta set í skírnarmndir seinna í dag

1000 kossar og knús til ykkar þarna úti

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 10:32:16 / horka

17 APRÍL

Hej hej allihopa;)

Upp er runnin fimmtudagur8|  jemin ég verð komin á elliheimili fljótlega ef tíminn fer ekki eitthvað að hægja á sér8|

En allavega ég fór í bæinn í gær að kenna fyrir hann Óla minn8) sem er kannski ekki í frásögu færandi ha, en þegar ég var að nálgast holuna miklu þá kaus á móti mér þessi líka rosalega hrossaskítslykt:^):^) svona að öllu jöfnu þá finnst mér sveitalyktin bara góð en þessi úff og oj :^):^) ég veit þá núna að bændur ætla ekki að splæsa í keyptan áburð þetta árið allt er orðið "lífrænt ræktað";)

Það var mikið dansað í gær, fyrst eldri borgarar:) þá var komið að okkur Dívunum að æfa fyrir keppnina8) næst komu svo miðvikudagshópurinn:haha: og í átta pásunni var komið að S-Group að sýna mér sína takta:haha: eftir 9 vorum við nokkrar Dívur eftir að æfa í góðan hálftíma;) Þannig að í dag er gamla þreytt í fótum svo ég minnist nú ekki á raddböndin 8|8| sem voru þanin til hins ýtrasta8| ætti kannski að fara í raddþjálfun er það ekki í tísku núna?

Nei verð að rjúka vinnan kallar;)          1000 kossar og knús til ykkar þarna úti


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13
DROTTNINGIN
Hugrún Sigurðardóttir heiti ég og er 45 ára skutla, á helling af börnum og eitt barnabarn, ömmuprinsinn:) Ég elska að dansa, og vera með mínum dansfélögum. Við hjónin erum rosalega samrýmd en maðurinn minn heitir Eyjólfur M. Eyjólfsson
Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 40481
Klukkan
Dagsetning
6. september 2010
Dagatal
september - 2010
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
FyrriNæsti
Á Föstum Fótum